Bjarni Har

Bjarni HarKvikmyndafélagið Skotta vinnur nú að gerð heimildamyndar um Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki. Það er Bjarni Har sem fer með aðalhlutverkið í myndinni en hann er eigandi verslunarinnar.
Haraldur Júlíusson faðir Bjarna stofnaði verslunina árið 1919 og hefur hún starfað óslitið síðan. Upphaflega verslunarhúsið var áður notað sem barnaskóli einnig hýsti það úr og gullsmíðaverkstæði J. Fr. Michelsens. Það verslunarhús sem við þekkjum í dag var byggt 1929 – 1930.
Bjarni hóf að vinna í versluninni með föður sínum árið 1959 og aðspurður segist hann ætla að versla meðan heilsa hans leyfir.

Leikstjóri: Stefán Friðrik Friðriksson
Kvikmyndataka: Frikki Frikk
Hljóðmaður: Eiríkur Hilmisson
Framleiðandi: Skotta kvikmyndafjelag.