Bjarni Har (2010)
Kvikmyndafélagið Skotta vinnur nú að gerð heimildamyndar um Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki. Það er Bjarni Har sem fer með aðalhlutverkið í myndinni en hann er eigandi verslunarinnar.
Haraldur Júlíusson faðir Bjarna stofnaði verslunina árið 1919 og hefur hún starfað óslitið síðan. Upphaflega verslunarhúsið var áður notað sem barnaskóli einnig hýsti það úr og gullsmíðaverkstæði J. Fr. Michelsens. Það verslunarhús sem við þekkjum í dag var byggt 1929 – 1930.
Bjarni hóf að vinna í versluninni með föður sínum árið 1959 og aðspurður segist hann ætla að versla meðan heilsa hans leyfir.
Nánar
Laufskálarétt (2010)
Í myndinni um Laufskálarétt er varpað fram þeirri spurningu hvers vegna á fjórða þúsund manns koma saman á Laufskálaholtinu síðustu helgina í september. Tökur hófust í september í fyrra. Myndað var í Kolbeinsdal í vetur og einnig þegar bændur fluttu hross og sauðfé í dalinn í vor og sumar. Tökum lauk um stóðréttarhelgina, 28. til 29. september 2008.
Myndin tekin í samvinnu við stjórn Upprekstrarfélagsins á svæðinu. Hún byggist á ósnortinni náttúru afréttarins, Kolbeinsdals, og iðandi mannlífi þegar stóð er réttað í Laufskálarétt í Hjaltadal. Þúsundir gesta koma í héraðið gagngert til að smala hrossum og fylgjast með stóðréttinni.
