Kraftur -Síðasti spretturinn (2009)
Myndin fjallar um hestinn Kraft og knapann Þórarinn Eymundson (Tóta). Þeir eru miklir félagar og sigursælt par á keppnisvöllum á Íslandi. Þeim stendur til boða að taka þátt í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi 2007 og Tóti þarf að taka erfiðustu ákvöðunina á ferli sínum. Íslenski hesturinn hefur verið einangraður á eyjunni úti í norðri í meira en 1000 ár og vegna smithættu má ekki flytja hesta sem fara út heim til landsins aftur. Fylgst er með þeim félögum hér heima og á heimsmeistaramótinu, velgengni en einnig efasemdum og sálarstríði knapans. Einlæg og hrífandi mynd um samband hests og manns.
Dansað á Fákspori (2008)
Sjónvarpsþættir um Meistaradeild norðurlands, KS deildin. Farið um víðan völl, talað við hestafólk úr Skagafirði og fylgst með keppni í meistaradeildinni.
Umsjónarmaður er Steinn Ármann Magnússon.
Í Austurdal (2005)

Í Austurdal
Óvenjuleg, einlæg og hrífandi mynd, sem lætur engan ósnortinn. Ferðalag um eyðibyggðir í Austurdal í Skagafirði. Náttúrubarninu Stefáni Hrólfssyni, öldnum gangnaforingja og félögum hans úr Gangnamannafélagi Austurdals, fylgt eftir við upprekstur hrossa, smölun og eftirleitir. Einstök náttúra, sögur frá liðinni tíð, léttleiki og sönn lífsgleði. Mynd eftir Árna Gunnarsson, Ingimar Ingimarsson og Þorvarð Björgúlfsson.
Mynd eftir
Árna Gunnarsson, Þorvarð Björgúlfsson og Ingimar Ingimarsson
Tónlist
Lou Reed, Björk Guðmundsdóttir, Jón Björnsson, Egill Ólafsson, Árni Gunnarsson o.fl.
Framleiðandi
Skotta ehf.
