Kvikmyndaganrýnandi Popplands á Rás 2 var mjög ánægður og segir meðal annars: „Maður sér þarna hlið á grjóthörðum metnaðarfullum íþróttamanni sem opnar sig og sýnir sínar tilfinningar” , „Skemmtileg innslög eru í myndinni t.d. viðtöl við skagfirska bændur þar sem þeir koma með alveg frábæra lífsspeki og heimsspeki sem að í ljósi aðstæðna á mjög vel við en myndin er gerð árið 2007.” og „Fjársjóður í kreppunni”.
Hægt er að hlusta á dóminn í Popplandi þriðjudaginn 6. okt. og er hann um miðja upptöku.
Eiðfaxi.is segir meðal annars „Óður til náttúrunnar og margar magnaðar senur úr fallegu landslagi Skagafjarðar.” Lesa dóminn og skoða myndir frá frumsýningu.
Hestafréttir.is „Höfundum myndarinnar tekst að sýna dýrmætt samband milli manns og hests og áhorfendur upplifa spennuna þegar þeir eru komnir til Hollands og þann mikla söknuð þegar Þórarinn kveður Kraft.” Lesa frétt og sjá mynd af Tóta og Árna.
847.is þykir myndin með því allra fallegasta sem birst hefur á tjaldinu og segja meðal annars: „Þessi mynd á vafalítið eftir að fara víða og afla íslenska hestinum aukinna vinsælda og vekja áhuga á landinu.” Sjá frétt.
Síðustu sýningar eru í dag fimmtudag og má sjá sýningartíma á miði.is.
