Menningarráð Norðurlands vestra úthlutaði sl. miðvikudag verkefnastyrkjum í síðari hluta umsókna ársins 2009. Hæsta styrkinn að þessu sinni fékk Skotta Kvikmynafjelag ehf. kr. 1.750 þúsund, vegna vinnslu heimildarmyndar um Bjarna Haraldsson, kaupmann á Sauðárkróki og þáttaraðarinnar Dansað á fákspori.
Afhending verkefnastyrkja fór fram í Kántrýbæ á Skagaströnd, en meðfylgjandi myndir tók Ingibergur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Menningarráðs. Alls bárust 65 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 47 milljónum króna. Á fundi sínum, 7. október sl., ákvað menningarráðið að úthluta verkefnastyrkjum til 52 aðila alls að upphæð 18.300.000 kr.
