Kraftur frumsýnd í Kringlubíó

SólarlagÞann 30. september n.k. verður heimildarmyndin Kraftur eftir Árna Gunnarsson, Þorvarð Björgúlfsson og Steingrím Karlsson frumsýnd í Kringlubíói.

Myndin fjallar um hestinn Kraft og knapann Þórarinn Eymundson. Þeir eru miklir félagar og sigursælt par á keppnisvöllum á Íslandi. Þeim stendur til boða að taka þátt í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi 2007 og Tóti þarf að taka erfiðustu ákvöðunina á ferli sínum. Íslenski hesturinn hefur verið einangraður á eyjunni úti í norðri í meira en 1000 ár og vegna smithættu má ekki flytja hesta sem fara út heim til landsins aftur. Fylgst er með þeim félögum hér heima og á heimsmeistaramótinu, velgengni en einnig efasemdum og sálarstríði knapans. Einlæg og hrífandi mynd um samband hests og manns.