Nú er unnið að gerð heimildamyndar um Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki.
Haraldur Júlíusson faðir Bjarna stofnaði verslunina árið 1919 og hefur hún starfað óslitið síðan. Upphaflega verslunarhúsið var áður notað sem barnaskóli einnig hýsti það úr og gullsmíðaverkstæði J. Fr. Michelsens. Það verslunarhús sem við þekkjum í dag var byggt 1929 – 1930.
Byggðasafn Skagfirðinga hóf samstarf við Verslun H. Júlíussonar árið 2003, með það að markmiði að varðveita 20. aldar verslunarhætti í Skagafrði.
Stefán Friðrik Friðriksson er leikstjóri myndarinnar, FrikkiFrikk er upptökumaður, Eiríkur Hilmisson sér um hljóðið og framleiðandi er Árni Gunnarsson.
