Forsala aðgöngumiða á myndina Kraftur – Síðasti spretturinn er hafin á miði.is og í Ástund, Ausurveri. Myndin er 47 mínútna löng og verður sýnd í Sambíói Kringlunni vikuna 1.-7. október. Miðaverð er kr. 900 í forsölu en annars kr. 1000.
Þetta verður sennilega eina tækifærið til að sjá myndina í háskerpu. Frumsýning er miðvikudag 30. sept kl: 18:30. Síðan eru tvær sýningar á dag 1.-7. október. Myndin verður sýnd á Króknum einhverntíma síðar, en það er tvennt ólíkt að sjá þessa mynd í stafrænni háskerpu og í Króksbíó.
Sýningartímar og forsala á Miði.is
Stikla úr myndinni á YouTube
