Þann 5. febrúar voru tilnefningar til Edduverðlauna gerð kunn.
Kraftur – Síðasti spretturinn var tilnefnd í flokki heimildamynda
Myndin fjallar um hestinn Kraft og knapann Þórarinn Eymundson. Þeir eru miklir félagar og sigursælt par á keppnisvöllum á Íslandi. Þeim stendur til boða að taka þátt í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi 2007 og Tóti þarf að taka erfiðustu ákvöðunina á ferli sínum. Íslenski hesturinn hefur verið einangraður á eyjunni úti í norðri í meira en 1000 ár og vegna smithættu má ekki flytja hesta sem fara út heim til landsins aftur. Fylgst er með þeim félögum hér heima og á heimsmeistaramótinu, velgengni en einnig efasemdum og sálarstríði knapans. Einlæg og hrífandi mynd um samband hests og manns.
Hér eru tilnefningarnar til Eddunar í flokki heimildamynda
H E I M I L D A M Y N D Á R S I N S
Alfreð Elíasson og Loftleiðir
Leikstjóri Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Framleiðandi Heimildarmyndir
Draumalandið
Leikstjórn Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason
Framleiðandi Ground Control Productions
Hrunið
Dagskrárgerð Eiríkur Ingi Böðvarsson & Þóra Arnórsdóttir
Framleiðandi Ríkisútvarpið
Kraftur – Síðasti spretturinn
Leikstjórn Árni Gunnarsson, Þorvarður Björgúlfsson og Steingrímur Karlsson
Framleiðandi Skotta Kvikmyndafjelag, Kukl og Mystery
Sólskinsdrengurinn
Leikstjórn Friðrik Þór Friðriksson
Framleiðandi Frontier Filmworks

Heimildarmyndin Kraftur – Síðasti spretturinn er komin á Krókinn eftir tvær vel heppnaðar sýningarvikur í Sambíóinu í Kringlunni, þar sem tæplega 1.200 manns sáu myndina.
Menningarráð Norðurlands vestra úthlutaði sl. miðvikudag verkefnastyrkjum í síðari hluta umsókna ársins 2009. Hæsta styrkinn að þessu sinni fékk Skotta Kvikmynafjelag ehf. kr. 1.750 þúsund, vegna vinnslu heimildarmyndar um Bjarna Haraldsson, kaupmann á Sauðárkróki og þáttaraðarinnar Dansað á fákspori.
Nú er unnið að gerð heimildamyndar um Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki.
Þann 30. september n.k. verður heimildarmyndin Kraftur eftir Árna Gunnarsson, Þorvarð Björgúlfsson og Steingrím Karlsson frumsýnd í Kringlubíói.